Foreldrafélög

Á skrifstofu Heimilis og skóla er að finna ýmis gögn:  Bækling um stjórn og rekstur foreldrafélaga (eldri bæklingur um skipulag foreldrasamstarfs), lög og skýrslur, auk þess sem til eru ýmis norræn tímarit, bækur og myndbönd þar sem fá má margvíslegar hugmyndir til notkunar í foreldrastarfi.

Starfsmenn samtakanna halda fyrirlestra fyrir foreldrafélög og hafa einnig lista yfir áhugaverða fyrirlesara sem taka á ýmsum málum er varða uppeldis-, velferðar- og skólamál.

Hér má nálgast bæklinginn Stjórn og rekstur foreldrafélaga á PDF formi.

 

Bekkjarfulltrúanámskeið

Heimili og skóli bjóða upp á námskeið fyrir bekkjarfulltrúa sem fjallar um hlutverk þeirra og tilgang, auk þess sem þeim er boðinn stuðningur með símaráðgjöf
Meira

Bekkjarfulltrúar

Á skrifstofu Heimilis og skóla er hægt að fá möppu er kallast " Foreldrabankinn ". Í þeirri möppu er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar s.s.
Meira

Leikskólar

Foreldrar bera frumábyrgð á uppeldi og velferð barna sinna en leikskólanum ber að veita foreldrum stuðning í uppeldi barna. Mikilvægt er að náið samstarf og
Meira

Skólafærninámskeið

Þegar nýr einstaklingur hefur skólagöngu, venjulega við 6 ára aldur, hefst 10 ára samstarf milli foreldra hans og þess skóla sem hann gengur í.
Meira