Foreldrasamstarf

Þjónusta Heimilis og skóla felst einkum í eftirfarandi:

  • að veita foreldrum/félagsmönnum stuðning og liðveislu til að þeir geti axlað uppeldishlutverk sitt
  • að miðla upplýsingum til foreldra svo þeir séu betur í stakk búnir til að taka þátt í mótun skólasamfélagsins
  • að efla starf foreldrafélaga svo þau verði sem virkust og foreldrar finni þar vettvang til samstarfs við skólann og til þátttöku í foreldrastarfi á landsvísu
  • að efla starf foreldraráða svo þau geti veitt skólum og skólayfirvöldum virkt og uppbyggjandi aðhald
  • að koma sjónarmiðum foreldra á framfæri við yfirvöld þegar teknar eru ákvarðanir sem varða skóla- og uppeldismál
  • að standa, ein eða í samvinnu við fleiri aðila, að verkefnum og vinnu sem stuðlar að bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum barna og unglinga og bættum hag fjölskyldna
  • að aðstoða við stofnun foreldrafélaga við framhaldsskóla landsins

Starfsmenn Heimili og skóla veita ráðgjöf í síma 562 7475 kl. 9-12 virka daga.
Fyrirspurnir er einnig hægt að senda til skrifstofunnar með tölvupósti

Sjá greinar Helgu Margrétar Guðmundsdóttur verkefnastjóra hjá Heimili og skóla: