Yfirlýsing framkvæmdahóps vegna fjárhagsstöðu Heimilis og skóla
Vegna upplýsinga um fjárhagsstöðu Heimilis og skóla – Landssamtaka foreldra sem fram koma í ársreikningi samtakanna fyrir árið 2010 og getið hefur verið um í fjölmiðlum vill framkvæmdahópur samtakanna koma eftirfarandi upplýsingum um fjárhagsstöðu samtakanna á framfari við félagsmenn og samstarfsaðila.
- Stóran hluta ársins 2010 voru gjöld mun hærri en tekjur. Það er mjög alvarlegt og bera framkvæmdastjórar, framkvæmdanefnd og stjórn samtakanna ábyrgð á því.
- Verkefni samtakanna voru mörg og kostnaðarsöm árið 2010. Eins og fram kemur í ársskýrslu samtakanna ræktu þau verkefnin sín vel af hendi á árinu, stóðu vörð um velferð skólabarna og studdu við foreldra í uppeldishlutverki sínu.
- Tekjur urðu lægri en gert var ráð fyrir þar sem erfitt reyndist að fá styrki fyrir verkefnum.
- Framkvæmdahópur sem tók til starfa í lok febrúar á þessu ári greip strax ákveðið í taumana og hefur ásamt stjórn og starfsfólki snúið rekstrinum við. Áætlun gerir ráð fyrir að reksturinn árið 2011 verði mun hagkvæmari en árin 2010 og 2009.
- Staða Heimilis og skóla nú í lok maí 2011 er sterk verkefnalega þrátt fyrir að fjárhagurinn sé ennþá veikur. Nýafstaðin uppskeruhátíð um foreldraverðlaunin og nýútgefið tímarit sýna það. Verkefnaáætlun ársins 2011 gerir ráð fyrir að Heimili og skóli ætla sér áfram að vera öflugur talsmaður foreldra í landinu og sinna skyldum sínum af fagmennsku, krafti og alúð.
Kostnaður umfram tekjur árið 2010
Árið 2010 voru gjöld Heimilis og skóla mun meiri en tekjur. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um fékk stjórn og framkvæmdanefnd ekki rétta mynd af fjárhag samtakanna frá framkvæmdastjóra á seinni hluta ársins 2010. Það var ekki fyrr en í byrjun febrúar 2011 að stjórn fékk raunsanna mynd af fjárhagsstöðunni. Það er mjög alvarlegt og hefði stjórn átt að hafa virkara eftirlit og grípa inn í reksturinn fyrr. Ábyrgðin á því hvílir hjá framkvæmdastjórum, formanni, framkvæmdanefnd og stjórn samtakanna.
Gjöld hækkuðu úr 48 mkr. árið 2009 í 61 mkr. árið 2010, eða um 26,5%. Launakostnaður hækkaði úr 31,5 mkr. í 38,3 mkr. eða um 21,3%. Skýrist það annars vegar af tíðum framkvæmdastjóraskiptum á árinu og hins vegar af auknum starfsmannafjölda á seinni hluta ársins. Aukinn kostnaður vegna verkefna samtakanna leiddi til þess að annar kostnaður hækkaði samtals úr 8,4 mkr. í 13,4 mkr. eða um 54,2%.
Tekjur lækkuðu úr 48,8 mkr. í 42,2 mkr. eða um 13,5% og munaði þar mikið um lægri styrki vegna SAFT, væntingar um styrki vegna verkefna gengu ekki eftir og félagsgjöld lækkuðu vegna þess að það láðist að senda út greiðsluseðla til hluta félagsmanna.
Eitt þeirra verkefna sem Heimili og skóli réðst í á árinu var eineltisherferð um allt land sem kostaði samtökin aukið fé, bæði í launakostnað og ráðstefnukostnað. Samtökin höfðu vilyrði frá aðilum um styrk til þessa verkefnis en þau vilyrði hafa ekki verið efnd. Framkvæmdahópurinn telur alvarlegt að þrátt fyrir mikla umfjöllun um aðgerðir gegn einelti og umfjöllun fjölmiðla um mjög alvarleg tilfelli eineltis skuli vilyrði um aðstoð við framkvæmd átaksins ekki vera efnd. Greining Heimilis og skóla á ráðgjafarþjónustu samtakanna við foreldra og nemendur sýnir að einelti er algengasta og alvarlegasta umkvörtunarefnið. Heimili og skóli hafa lagt sitt af mörkum til að sporna við einelti og kalla eftir að aðrir sýni hug sinn í verki og styðji samtökin til þessa verks.
Gripið til aðgerða í febrúar 2011
Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um fékk stjórn og framkvæmdanefnd ekki rétta mynd af fjárhagsstöðu samtakanna frá framkvæmdastjóra á seinni hluta ársins 2010. Það var ekki fyrr en í byrjun febrúar 2011 að stjórn fékk raunsanna mynd af stöðunni. Brugðist var strax við með niðurskurði og aðgerðum til að laga stöðuna. Þær aðgerðir hafa þegar borið töluverðan árangur og stefnir í að samtökin verði komin á réttan kjöl fyrir lok þessa árs.
Niðurstaðan fyrstu fjóra mánuði ársins 2011 sýnir að afgangur er af rekstrinum upp á rúmlega 500 þúsund krónur. Samningar við birgja hafa skilað töluverðu hagræði í rekstri og er gert ráð fyrir að þar megi ná enn meiri árangri. Skammt er einnig í að fækkun starfsmanna fyrr á árinu fari að hafa áhrif í lægri launakostnaði og mun það bæta stöðuna enn frekar.
Aukið aðhald í rekstri mun þó ekki þýða að Heimili og skóli ætli að slá slöku við í verkefnum sínum. Verið er að skerpa á hlutverkum starfsmanna og starfsháttum stjórnar auk þess sem að í auknum mæli verður leitað til faglegra sjálfboðaliða til að sinna verkefnum. Leitað verður til styrktaraðila til að styðja við framkvæmd verkefna. Samtökin munu standa við allar skuldbindingar sínar og samninga við samstarfsaðila.
- Áfram verður rekin ráðgjafarþjónusta við foreldra um allt land um síma og netið.
- Heimili og skóli eru regnhlífasamtök foreldrafélaga í landinu og munu áfram styðja við þeirra störf um allt land.
- Verkefni á vegum SAFT ganga mjög vel og hefur faglegt framlag Heimilis og skóla þar vakið athygli um alla Evrópu.
- Heimili og skóli munu áfram vera aðili að fjölmörgum samstarfsverkefnum sem stuðla að aukinni velferð skólabarna og styðja við foreldra í uppeldishlutverki sínu.
- Samtökin munu áfram sinna fræðsluhlutverki sínu um foreldrasamstarf með fyrirlestrum og útgáfu fræðsluefnis.
- Metnaðarfull útgáfuáætlun gerir ráð fyrir aukinni útgáfu fræðsluefnis til foreldra á árinu.
Lærdómur og breyttir stjórnhættir
Á aðalfundi Heimilis og skóla í maí 2010 var kynntur ársreikningur ársins 2009 sem sýndi að töluverður afgangur var af rekstri árins 2009 og eigið fé var jákvætt um 16,1 mkr. Fjárhagsáætlun samtakanna fyrir árið 2010 gaf einnig til kynna að reksturinn árið 2010 yrði heilbrigður. Ljóst er að þrátt fyrir að lögð hafi verið áhersla á umfangsmikla fjármálaþekkingu við ráðningu framkvæmdastjóra á árinu 2010 var eftirliti með fjármálum ábótavant. Hér verður stjórn að bæta verklag og unnið er að því að innleiða skýrari stjórnhætti og skilvirkari fjármálastjórnun hjá samtökunum.
Heimili og skóli – Landssamtök foreldra gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Í 19 ára sögu sinni hafa samtökin áorkað miklu með hagsmunagæslu um velferð skólabarna. Samtökin hafa einnig átt stóran þátt í að breyta viðhorfi til hlutverks foreldra í skólasamfélaginu þannig að nú er almennt viðurkennt að þátttaka foreldra eykur gæði skólastarfs. Enn er þó víða pottur brotinn þegar kemur að velferð skólabarna á Íslandi og í of mörgum skólum landsins er foreldrasamstarf ennþá meira í orði en á borði. Hrunið og sparnaðaraðgerðir stjórnvalda í skólamálum undanfarin misseri sýna einnig að hugsjónir og baráttumál Heimilis og skóla eru mikilvægari nú en þau hafa oft verið.
Framkvæmdahópur Heimilis og skóla skorar á landsmenn að styðja við bakið á samtökunum í vegferð þeirri sem nú stendur yfir í gegnum fjárhagslega erfiðleika þeirra og styðja þannig við það óeigingjarna og faglega starf sem þar er unnið.
Reykjavík, maí 2011
Framkvæmdahópur Heimilis og skóla:
Ketill B. Magnússon, formaður
Svava Bernhard Sigurjónsdóttir, stjórnarmaður
Halldór Jörgensson, stjórnarmaður
Fylgirit:
Ársreikningur Heimilis og skóla árið 2010
Fjármálayfirlit Heimilis og skóla fyrir fyrstu 4 mánuði ársins 2011
Ársskýrsla Heimilis og skóla árið 2010
Yfirlýsingu framkvæmdahóps vegna fjárhagsstöðu Heimilis og skóla er einnig að finna í pdf skjali hér.


