Fyrirlestrarherferð haustið 2010
EINELTI OG UNGT FÓLK OG NETIÐ
Heimili og skóli – landssamtök foreldra, Liðsmenn Jerico, Olweusaráætlunin og Ungmennaráð SAFT standa nú fyrir eineltisátaki á landsvísu, og halda fyrirlestrakvöld og jafningjafræðslufundi á 11 stöðum á landinu um einelti, netið og nýmiðla.
Farið er til Árborgar, Ísafjarðar, Reykjanesbæjar, Akureyrar, Skagafjarðar, Grundafjarðar, Fljótsdalshéraðs, Borgarbyggðar, Vestmannaeyja, Hafnar í Hornafirði og til Reykjavíkur tímabilið 14. september til 3. nóvember 2010.
Umfjöllunarefni fundanna er einelti og ungt fólk og netið. Leikhópar á þessum 11 stöðum munu undir handleiðslu leiklistakennara eða leiðbeinanda setja upp leiksýninguna „Þú ert það sem þú gerir á netinu“ og sýna í skóla á hverjum stað á jafningjafræðslufundi.
Um kvöldið er haldið málþing þar sem leikritið verður endurflutt og fyrirlesarar frá Heimili og skóla, Liðsmönnum Jerico og frá Olweusaráætluninni flytja erindi um einelti út frá sjónarhóli foreldra og þolenda auk þess sem rætt er um þau úrræði sem í boði eru. Fundarstjórar eru bæjarstjórar eða fræðslustjórar í viðkomandi sveitarfélagi, og fjalla þeir um einelti og aðgerðir gegn einelti í viðkomandi sveitarfélagi. Málþingin verða haldin í samkomusal á viðkomandi stöðum en leitast verður við að kynna dagskrána fyrir íbúum nágrannasveitarfélaga og verða allir velkomnir. Að erindum loknum svara fyrirlesarar fyrirspurnum.
Fyrirlestraátakið er hluti af áætlun þriggja ráðuneyta sem birtist í Greinargerð um aðgerðir gegn einelti í skólum og vinnustöðum:
http://www.menntamalaraduneyti.is/media/MRN-pdf/Einelti_-_Greinargerd_24_juni_2010_-_lokaskjal.pdf
Heimsóknin er viðkomandi skóla og bæjarfélagi algerlega að kostnaðarlausu.


