Fréttir

09.03.2010 | Hagnýtt efni

Heilsa og lífskjör skólanema - HBSC

Rannsóknarsetur forvarna við Háskólann á Akureyri tekur þátt í alþjóðlegu rannsókninni Health Behaviours in School-Aged Children (HBSC). Rannsóknin er gerð á fjögurra ára fresti með tilkstyrk Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.

Rannsóknin beinist að margvíslegum þáttum í lífi ungs fólks. Þar má nefna félagslegar aðstæður og tengsl við foreldra og vini, mataræði, hreyfingu og tómstundastarf. Einnig er sjónum beint að áhættuhegðun af ýmsu tagi meðal eldri nemenda, svo sem óábyrgri og hættulegri kynhegðun.

Vorið 2006 tóku um 13.000 börn og unglingar í 6., 8. og 10. bekk grunnskóla á Íslandi þátt í HBSC rannsókninni. Fyrstu íslensku niðurstöðurnar voru kynntar í maí 2006, og alþjóðlegar niðurstöðurnar lágu fyrir í júní 2008.

Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri er stjórnandi HBSC rannsóknarinnar á Íslandi. Starfsmaður verkefnisins er Guðríður Ólafsdóttir.

 

Rannsóknateymi HBSC á Íslandi veitir meðal annars nánari upplýsingar um

- fjölskyldugerð og samskipti í fjölskyldum (Ársæll)

- vinatengsl og unglingasamfélag (Kjartan)

- kynhneigð og kynhegðun (Sigrún)

- skólamál og tengsl heimilis og skóla (Trausti)

- áhættuhegðun og vímuefnaneyslu (Þóroddur)

- tannheilsu (Þórarinn)


Hægt er að nálgast íslenskar niðurstöður HBSC sem og alþjóðlegar niðurstöður hér.

Til baka