Fréttir
09.03.2010 | Fréttir
Beðið eftir áliti lögmanns
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs, segir ekki alls kostar rétt að leikskólaráð ætli að endurskoða ákvörðun sína um að afnema systkinaafslátt eins og fram kom í máli Oddnýjar Sturludóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, í Fréttablaðinu síðasta laugardag.
„Tillagan felur aðeins í sér að borgarlögmaður skoði jafnræðisregluna gagnvart því að hleypa systkinum barna fram fyrir eldri börn," segir Þorbjörg Helga. „Það er ekki fyrr en eftir að álit hans liggur fyrir sem hægt verður taka afstöðu til endurskoðunar."
Oddný sagði fulltrúa í leikskólaráði varla hafa fengið fleiri kvartanir frá foreldrum um einstakt mál en afnám systkinaforgangs. Þorbjörg Helga segir foreldra barna sem ekki áttu systkini í leikskólum sömuleiðis hafa verið mjög ósa´tta við að yngri börn kæmust fram fyrir þeirra börn áður en systkinaforgangur var afnuminn 2008. „Í raun snýst þetta um að forgangur fyrir fleiri þýðir lengri bið fyrir alla. Einfaldast er að miða við kennitölur nema ef um sérþarfir eða greiningar er að ræða."
Fréttablaðið



