Fréttir
09.03.2010 | Fréttir
Frelsi til fjölskyldulífs – samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Mánudaginn 8. mars síðastliðinn var fundur á Grand hótel í tilefni af 100 ára afmæli alþjóðlegs baráttudags kvenna þar sem Heimili og skóli áttu fulltrúa. Yfirskrift fundarins var: Frelsi til fjölskyldulífs - samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Þar kom helst fram að ekki væri börnum boðlegt að vera í 45 tíma á viku á stofnun og spurt var hvort við værum búin að stofnanavæða uppeldi og menntun? Níu tíma vistun barna á leikskólum var meðal annars til umræðu og brýnt þótti að koma þeim skilaboðum út í samfélagið að stytta þyrfti vinnutíma foreldra.
Frummælendur voru: Dr. Gyða Margrét Pétursdóttir aðjúnkt í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands og Heiða Björk Rúnarsdóttir, leikskólastjóri í leikskólanum Kópasteini. Fundarstjóri var Þórhildur Þorleifsdóttir, formaður Jafnréttisráðs og hvatti hún fundarmenn til að beita sér fyrir því, hver á sínum vettvangi, að vinnutími foreldra yrði styttur þannig að þeir hefðu frelsi til fjölskyldulífs.



