Fréttir
23.02.2010 | Fréttir
Minnum á málþing á morgun, 24. febrúar!
Næsti morgunverðarfundur Náum áttum hópsins er á morgun, miðvikudaginn 24. febrúar, klukkan 8.15-10. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er: Börn með ADHD-ekki gera ekki neitt.
Fundarstjóri er Salbjörg Bjarnadóttir.
Framsöguerindi:
- Ingibjörg Karlsdóttir, félagsráðgjafi og formaður ADHD-samtakanna: Þjónusta sem nýtist ADHD börnum og fjölskyldum þeirra.
- Bóas Valdórsson, sálfræðingur á barnadeild BUGL: Hvað virkar í starfi með börnum með ADHD?
- Kristín Snorradóttir, BA í þroskaþjálfafræði og ráðgjafi í Foreldrahúsi: Tengsl ADHD og vímuefnaneyslu.
Opnar umræður verða í lok fundarins.
Þátttökugjald er 1.500 krónur sem þarf að staðgreiða. Morgunmatur er innifalinn í gjaldinu. Skráning fer fram hér.
Smellið hér til að skoða nánar auglýsingu.



