Fréttir
04.02.2010 | Fréttir
Dagur leikskólans
Þann 6. febrúar næstkomandi er dagur leikskólans en þann dag, árið 1950, stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar.
Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Leikskólakennarar munu auk þess fagna 60 ára afmæli félagsins meðal annars með útgáfu veglegs afmælisrits.
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við.
Leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna hafa á undanförnum árum, ásamt nemendum sínum, gert daginn eftirminnilegan á ýmsa vegu. Í fyrra var, svo dæmi séu tekin, farið í „meðmælagöngur", foreldrum og velunnurum boðið í morgunmat og kaffi, vasaljós notuð til að varpa ljósi á barnið, haldnar myndlistar- og leiksýningar og mikið sungið eins og venja er í leikskólum. Annars hafa leikskólar frjálsar hendur um hvernig þeir gera sér dagamun í tilefni dagsins.
Til baka


