Fréttir
01.02.2010 | Fréttir
Vel heppnaður fundur um foreldrasamstarf
Góð mæting var á vel heppnaðan fund Heimilis og skóla og menntamálaráðuneytisins um foreldrasamstarf á framhaldsskólastigi síðastliðinn föstudag.
Hátt í áttatíu manns mættu á fundinn sem haldinn var í menntamálaráðuneytinu föstudaginn 29. janúar frá klukkan eitt til hálffimm. Dagskráin var þéttskipuð en þar mátti finna fjölbreytt og fróðleg erindi sem féllu í góðan jarðveg og voru viðstaddir afar ánægðir með fundinn sem ætlað var að styrkja og efla foreldraráð framhaldsskóla í starfi.
Fundargerð er að finna hér og á næstu dögum birtum við einnig þær glærur sem notaðar voru með fyrirlestrum. Myndir frá fundinum eru komnar inn á fésbókarsíðu (facebook) Heimilis og skóla.
Til baka


