Fréttir
01.02.2010 | Fréttir
Mikill skortur á dagforeldrum
Dagforeldrum hefur fækkað síðustu mánuði. Leikskólasvið leitar að fólki til starfa í miðbænum. Alls eru 164 dagforeldrar að störfum en voru 188 árið 2007 og vantar nú dagforeldra um alla borg.
Leikskólasvið hefur beint tilmælum til þjónustumiðstöðva í 101, 105 og 107 Reykjavík, það er Vesturbæ, Miðbæ og Hlíðum, um að finna dagforeldra til starfa.
Samkvæmt upplýsingum frá sviðinu eru alls sjötíu laus pláss í borginni, sem fækkar dag frá degi, en ekkert þeirra er í miðbænum.
„Ég skil vel að það sé erfitt fyrir foreldra í Vesturbæ að fara upp í Breiðholt eftir dagforeldrum og við höfum brugðist við þessari aukningu með því að biðja um að það sé haft samband við fyrrverandi dagforeldra og auglýst eftir þeim, til dæmis í hverfablöðum," segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri leikskólasviðs. Nokkur pláss séu laus í Laugardal, en þar þurfi líklega að auglýsa líka.
Engin miðlæg skrá heldur utan um hversu margir hafa sótt um dagvistun í þessum hverfum, og þar með hversu margir eru á biðlista, enda halda dagforeldrar sínar eigin skrár.
Síðastliðið haust var lítil spurn eftir lausum plássum hjá dagforeldrum í Reykjavík. Fullmannað var á leikskólum og metfjöldi barna komst inn á þá. Við þessar aðstæður fækkaði dagforeldrum. Ofan á bættist að um áramótin lækkuðu borgaryfirvöld svokallaða þjónustutryggingu, eða heimgreiðslur; fé til foreldra sem ekki fara með börn sín á leikskóla eða til dagforeldra.
„Og það hefur aldrei verið hringt jafn rosalega mikið og núna um áramótin, ekki síðan ég byrjaði fyrir níu árum," segir Ólöf Lilja Sigurðardóttir, stjórnarmaður í Barnavistun, félagi dagforeldra. Í áranna rás hafi ástandið alltaf verið erfiðara í miðbænum en í úthverfum: „En núna vantar alls staðar."
Ólöf kveður heimgreiðslur hafa spillt mikið fyrir og verið lækkaðar of seint: „Ef þær hefðu ekki verið væru sennilega mun fleiri dagforeldrar að störfum í dag," segir Ólöf, sem efast um að dagforeldrarnir snúi aftur „þótt það sé allt vitlaust að gera".
Ragnhildur Erla efast um að þessar greiðslur séu rót vandans. Á þenslutímum sé einfaldlega erfiðara að fá fólk á leikskólana. Þá sé eftirspurnin meiri hjá dagforeldrum, sem fjölgi.
Fréttablaðið



