Fréttir
28.01.2010 | Fréttir
Eins til tólf ára börn saman í skóla
Mennta- og leikskólaráð Reykjavíkurborgar hafa samþykkt að nýr skóli í Úlfársdal skuli rúma allt skólastarf fyrir börn á aldrinum eins árs til tólf ára; leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili.
Nýi skólinn mun taka til starfa haustið 2010. Þá verða í skólanum börn til og með 5. bekk grunnskóla. Síðan bætist við einn árgangur á hverju ári.
Skólinn mun heyra undir Menntasvið Reykjavíkurborgar sem gerir samstarfssamninga við leikskólasvið og íþrótta- og tómstundasvið.
Áherslur í skólastarfi í Úlfarsárdal verði listir og lýðheilsa, umhverfismennt, læsi, lesskilningur og bókmenntir.
Fréttablaðið



