Fréttir

27.01.2010 | Fréttir

Börn hjálpa börnum

Börn af Seltjarnarnesi munu í dag, 27. janúar, kl. 10.30 færa Barnaspítala Hringsins peningagjöf sem þau hafa sjálf safnað með tónleikum í nóvember síðastliðnum.

Um er að ræða Barnakór Mýrarhúsaskóla og Seltjarnarneskirkju annars vegar og hins vegar sönghóp stúlkna í 10. bekk Valhúsaskóla.

Kórarnir héldu tónleika saman 15. nóvember sl í Félagsheimili Seltjarnarness. Flutt var fjölbreytt söngdagskrá og seldar vöfflur og kakó. Ákveðið var að öll innkoman færi til Barnaspítala Hringsins og voru það krakkarnir sjálfir sem ákváðu það. Salurinn var fullur af fólki og almenn ánægja með framtakið.

Börnin munu taka strætó saman frá skólunum og munu syngja nokkur lög fyrir jafnaldra sína um leið og þau afhenda peningagjöfina. 

Stjórnandi kóranna er Inga Björg Stefánsdóttir, tónmenntakennari Mýrarhúsaskóla og undirleikari Friðrik Vignir Stefánsson, organisti Seltjarnarneskirkju.

mbl.is

Til baka