Fréttir
25.01.2010 | Fréttir
Málstofa um barnavernd
Mánudaginn 25. janúar verður málstofa á vegum Barnaverndarstofu, Barnaverndar Reykjavíkur og félagsráðgjafadeildar Háskóla Íslands.
Þorbjörn Broddason prófessor við félagsvísindasvið HÍ mun fjalla um barnavernd og fjölmiðla undir yfirskriftinni „Nýir miðlar á nýjum tímum: Blessun eða bölvun?"
Málstofan er haldin í fundarsal Barnaverndarstofu, Borgartúni 21 kl. 12:15-13:15.



