Fréttir
25.01.2010 | Fréttir
Fékk viðurkenningu FKA
Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors, hlaut í gær viðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) fyrir árið 2010. Viðurkenningin var afhent í Perlunni fyrir helgi.
Í tilkynningu segir að tilkoma fyrirtækisins hafi gerbylt öllu skólastarfi og auðveldað til muna samskipti kennara, foreldra og nemenda. Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical, hlaut hvatningarverðlaun FKA. Þá fékk Bára Magnúsdótttir, framkvæmdastjóri Jazzballettskóla Báru, þakkarviðurkenningu fyrir framúrskarandi ævistarf.
Fréttablaðið



