Fréttir

22.01.2010 | Fréttir

Skráðir nemendur á framhalds- og háskólastigi aldrei fleiri

Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur um skráða nemendur í framhaldsskólum og háskólum haustið 2009 og gefið út hefti í ritröðinni Hagtíðindi.

Haustið 2009 eru skráðir nemendur á framhalds- og háskólastigi fleiri en nokkru sinni fyrr eða 48.706. Í framhaldsskóla eru skráðir 29.698 nemendur og 19.008 í háskóla. Skráðum nemendum hefur fjölgað um 3,0% frá fyrra ári sem er lítið eitt meiri fjölgun en árið áður. Fjölgunin er öllu meiri á háskólastigi, eða um 5,5%, á móti 1,5% á framhaldsskólastigi. Fjölgun nemenda skýrist fyrst og fremst af vexti fjarnáms á háskólastigi en nemendum í fjarnámi á framhaldsskólastigi fækkaði frá fyrra ári í fyrsta skipti.

Nemendur grunnskóla, sem jafnframt sækja nám í framhaldsskólum, eru 1.090, sem er 4,0% skráðra nemenda í framhaldsskólum. Grunnskólanemendum í framhaldsskólum hefur fækkað um fjórðung á milli ára. Rúmlega eitt hundrað nemendur á grunnskólaaldri eru á undan jafnöldrum sínum í námi og því skráðir sem fullgildir nemendur í framhaldsskólum. Það jafngildir 2,3% árgangs 15 ára árið 2009.

Ítarlegar upplýsingar um fjölda skráðra nemenda haustið 2009 eftir skólum, námsbraut, kyni og kennsluformi er að finna í Hagtíðindum en þau má nálgast hér á vef Hagstofu Íslands.

Til baka