Fréttir
20.01.2010 | Fréttir
Samþykki eins foreldris nægir
Lækni er heimilt að miðla til félagsmálayfirvalda upplýsingum úr sjúkraskrá barns með samþykki annars foreldris.
Þetta kemur fram í svari Persónuverndar við almennri fyrirspurn. Þar kemur fram að almennt nægi samþykki annars forsjárforeldris barns fyrir nauðsynlegum ákvörðunum, það er ef hitt foreldrið er hindrað í að sinna forsjárskyldum sínum.
Um leið kemur fram að sé þess unnt að bíða með ákvörðun þá skuli það gert fram til þess tíma að foreldrið sé ekki lengur hindrað í að sinna forsjárskyldum sínum.
Fréttablaðið



