Fréttir
18.01.2010 | Fréttir
Heilahristingur - heimanámsaðstoð á bókasafninu
Í síðustu viku var opnuð heimasíða Heilahristingsins að viðstöddum fjölda gesta.
Heilahristingur er heimanámsaðstoð við nemendur í 5. til 10. bekk í grunnskólum Breiðholts og á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti. Tilgangur verkefnisins er að styðja og styrkja nemendur í námi og kynna þeim þá þjónustu sem bókasafnið býður upp á.
Heimanámsaðstoðin er krydduð með ýmsum skemmtilegum uppákomum eina og dansi, bíósýningum og tónlist. Megináhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á hvetjandi umhverfi sem styður við skapandi barna- og unglingastarf. Sjálfboðaliðar leiðbeina nemendum og eru þeir meðal annars framhaldsskólanemar, kennaranemar svo og kennarar á eftirlaunum.
Heilahristingur er samstarfsverkefni Borgarbókasafns og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands og er verkefnið styrkt af þróunarsjóði innflytjendamála og menntaráði Reykjavíkur. Við opnun síðunnar sögðu Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnisstjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni, og Þór Gíslason, verkefnastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands, frá verkefninu og Alis, nemandi í Fjölbraut í Breiðholti, sagði frá reynslu sinni af heimanámsaðstoðinni. Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi og fulltrúi menntaráðs, opnaði heimasíðuna sjálfa með aðstoð nemenda. Slóðin er: www.heilahristingur.is.
Fjölskyldan - sérblað Fréttablaðsins



