Fréttir

14.01.2010 | Fréttir

Hjallastefnan skráir alla sína skóla

Nýverið sendu Heimili og skóli – landssamtök foreldra út bréf til leik-, grunn- og framhaldsskóla til að kynna starfsemi samtakanna og afla félaga. Skemmst er frá því að segja að viðbrögð hafa verið góð og margir nýir félagar hafa bæst í hópinn.

Nú síðast skráði Hjallastefnan alla leik- og grunnskóla sína í samtökin, þrjá grunnskóla og tíu leikskóla, og þess má einnig geta að Hjallastefnan styrkti eineltisátak Heimilis og skóla um 100.000 krónur. Við þökkum góðan stuðning og vonum að fleiri sjái sér fært að gerast félagar en draumur okkar er að allir skólar á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi verði aðilar að samtökunum sem hafa upp á margt að bjóða. Fyrir aðild fær hver skóli meðal annars:

  • handbók um skipulagningu foreldrasamstarfs sem og uppfærslu á henni
  • árlegt tímarit samtakanna
  • veftímaritið Samstíga
  • bæklinga sem samtökin gefa út, til dreifingar fyrir foreldra
  • reglulegar tilkynningar um það sem er á döfinni ásamt fréttum um málaflokkinn
  • ráðgjöf ef óskað er eftir
  • afslátt á fyrirlestrum á okkar vegum ef óskað er eftir fyrirlestri eða námskeiði en almennur fyrirlestur kostar 40.000 kr. en 30.000 kr. fyrir félaga
  • ráðgjöf og fyrirlestra um örugga netnotkun
     

Til baka