Fréttir
11.01.2010 | Á döfinni
Samræmd próf í 4., 7. og 10 bekk haustið 2010
Tilkynnt hefur verið um dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10 bekk haustið 2010.
Verða prófin sem hér segir:
10. bekkur:
Íslenska - mánudagur 20. september
Enska - þriðjudagur 21. september
Stærðfræði - miðvikudagur 22. september
4. og 7. bekkur:
Íslenska - fimmtudagur 23. september
Stærðfræði - föstudagur 24. september
Ákvörðun um prófdaga samræmdra könnunarprófa haustið 2010 var tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa er aðgengileg á heimasíðu menntamálaráðuneytisins.
Nánari upplýsingar um prófin, svo sem tímasetningar, verður að finna í framkvæmdahefti og á vefsíðu Námsmatsstofnunar þegar nær dregur prófunum.
Tilgangur samræmdra könnunarprófa í grunnskólum er meðal annars að athuga að hvaða marki námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð, vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendru og veita nemendum, foreldrum og skólum upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda.
Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 er kveðið á um að samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skuli lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla. Jafnframt er kveðið á um að nemendur 10. bekkjar skuli á fyrri hluta skólaársins þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.
Til baka


