Fréttir
08.01.2010 | Hagnýtt efni
Tommi og tækin og tvær nýjar hljóðbækur
Komin er út ný smábók, Tommi og tækin. Smábækur Námsgagnastofnunar eru ætlaðar börnum sem eru að æfa lestur.
Tommi og tækin er í fimmta þyngdarflokki samkvæmt flokkun Námsgagnastofnunar á lestrarbókum. Á veftorginu Íslenska á yngsta stigi er einnig að finna ýmiss konar efni tengt lestrarkennslu og hægt er að skoða flokkun á lesefni Námsgagnastofnunar fyrir 1. til 4. bekk.
Einnig eru nýkomnar til niðurhals á vef Námsgagnastofnunar hljóðbækurnar Trunt, trunt og tröllin og Lífið í Ásgarði - Gullnar töflur í grasi.
Hlaða niður Trunt, trunt og tröllin
Hlaða niður Lífið í Ásgarði - Gullnar töflur í grasi
Leiðbeiningar um niðurhal hljóðbóka



