Fréttir
07.01.2010 | Fréttir
Skera niður hjá dagforeldrum
Byggðaráð Borgarbyggðar hefur ákveðið að lækka greiðslu vegna dagforeldra um 25 prósent. Er þetta hluti af sparnaðaraðgerðum.
Einnig á að grípa til mikils sparnaðar í leikskólum sem verður lokað í fimm vikur næsta sumar. Endurskoða á reglur sem gilda um barnafjölda á hvert stöðugildi til að spara í mannahaldi. Fækkað verður á deildum í leikskólum þar sem barnafjöldi og aðstaða gefur tilefni til og draga á úr stjórnunarkostnaði. Starfsemi í leikskólanum í Varmalandi verður hætt um mitt þetta ár.
Fréttablaðið



