Fréttir

04.01.2010 | Fréttir

Nýtt skipurit Sambands íslenskra sveitarfélaga

Á fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldinn var 27. nóvember síðastliðinn, var staðfest nýtt skipurit fyrir skrifstofu sambandsins.

Samkvæmt aðgerðaáætlun sem byggir á stefnumörkun sambandsins fyrir árin 2009 og 2010 ber að setja á stofn nefnd um velferðarmál á vegum sambandsins í nóvember 2009 jafnframt því að setja nefndinni erindisbréf. Samfara því var ákveðið að kanna hugsanlega ráðningu sérfræðings á skrifstofu sambandsins sem vinni að verkefnum félagsþjónustu sveitarfélaga og yfirfærslu málefna fatlaðra og þjónustu aldraðra frá ríki til sveitarfélaga.

Í breytingunum á skipuritinu felst að nafni lögfræðisviðs er breytt í lögfræði- og velferðarsvið, en stærsta breytingin hvað einstaka málaflokka varðar felst í því að skólamálin flytjast frá þróunar- og alþjóðasviði til lögfræði- og velferðarsviðs. Félagsþjónustan og húsnæðismálin eru  einnig vistuð á því sviði. Menningar-, æskulýðs- og íþróttamál auk atvinnumála eru  vistuð á þróunar- og alþjóðasviði.

Nýtt skipurit er að finna hér.

Vakin er athygli á þeim möguleika að gerast áskrifendur að fréttum tiltekins sviðs sambandsins. Neðst, hægra megin á forsíðu vefjar sambandsins er lógó sem vísar inn á áskrift.  Þeir sem hafa nýtt sér þennan möguleika varðandi skóla- og fræðslumálin þyrftu þá að breyta áskriftinni og tengja hana nýju sviði.

Jafnframt er minnt á að fundargerðir skólamálanefndar sambandsins eru aðgengilegar á rafrænu formi, skýrslur frá skólaþingum og málstofum sambandsins og fleira  á síðunni „Skólamál".
 

Til baka