Fréttir
28.12.2009 | Fréttir
Þjónustutrygging lækkar
Reykjavíkurborg mun greiða 25 þúsund krónur í þjónustutryggingu á hvert barn frá 1. janúar til 1. ágúst 2010 en greiðslan verður 20 þúsund krónur eftir það.
Þetta var ákveðið í leikskólaráði þann 16. desember síðastliðinn. Þjónustutryggingu er ætlað að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til barnið kemst í leikskóla. Samkvæmt reglum um þjónustutryggingu er hún greidd þar til leikskólapláss býðst eða önnur þjónusta, svo sem hjá dagforeldri eða sjálfstætt starfandi leikskóla. Þjónustutrygging kom til framkvæmda 1. september 2008.
Vísir.is
Sjá nánar reglur um þjónustutryggingu hér.



