Fréttir
21.12.2009 | Fréttir
Áhyggjur vegna unglingadrykkju í Grafarholti
Íbúasamtök Grafarholts hafa áhyggjur af því að lítið sé um að vera fyrir unglinga í hverfinu. Hærra hlutfall unglinga þar reykir og drekkur en í öðrum hverfum.
Í bréfi sem samtökin sendu borgaryfirvöldum greina þau jafnframt frá óánægju sinni með lítið framboð skipulagðrar frístundastarfsemi í Grafarholti. Tafir hafa orðið á uppbyggingu íþróttaaðstöðu Fram í Úlfarsárdal en að auki er gagnrýnt að möguleikar Ingunnarskóla séu ekki nýttir.
Í nýlegri könnun Rannsóknar og greiningar kom fram að 40% nemenda í 9. og 10. bekkjum í Grafarholti drekki og 20% reyki.
Sjá nánar í Morgunblaðinu, 21. desember 2009.



