Fréttir
09.12.2009 | Fréttir
Aðalfundur Barnanna okkar og fundur með Leikskólasviði og fulltrúum Leikskólaráðs
Miðvikudagskvöldið 9. desember verður haldinn aðalfundur Barnanna okkar, samtaka foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 20 í Norræna húsinu. Fundur fyrir foreldra með Leikskólasviði og fulltrúum Leikskólaráðs verður haldinn fimmtudagskvöldið 10. desember kl. 20 í sal Miðbæjarskólans.
Félagsmenn foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík eiga rétt á setu á fundinum, og hver leikskóli hefur eitt atkvæði. Hvatt er til þess að öll foreldrafélög sendi a.m.k. einn fulltrúa, en allir foreldrar eða forráðamenn sem eru aðilar að foreldrafélagi eru velkomnir.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Skýrsla gjaldkera um reikninga félagsins
3. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
4. Atkvæðagreiðsla um reikninga.
5. Breytingar á starfsreglum.
6. Umræður og ákvarðanir um málefni félagsins.
7. Kosning stjórnarmanna, varamanna og tveggja skoðunarmanna reikninga.
8. Önnur mál.
Fundur fyrir foreldra með Leikskólasviði og fulltrúum Leikskólaráðs verður haldinn fimmtudagskvöldið 10. desember kl. 20 í sal Miðbæjarskólans. Á fundinum verða komandi hagræðingaraðgerðir á Leikskólasviði Reykjavíkurborgar kynntar.
Allir foreldrar og forráðamenn velkomnir og hvattir til þess að mæta!



