Fréttir
09.12.2009 | Fréttir
Sársaukafull hagræðing í velferðarmálum
Algerlega óásættanlegt er að borgarstjórnarmeirihlutinn fari í sársaukafulla hagræðingu í velferðarmálum, þvert á það sem talað hafi verið um, segir borgarfulltrúi Vinstri grænna.
„Við viljum að við þessar erfiðu aðstæður sé forgangsraðað í þágu velferðar, með áherslu á börnin," segir Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík.
Þorleifur segir að þó að samkvæmt fjárhagsáætlun renni fleiri krónur til velferðarmála í Reykjavík á næsta ári en í ár séu bætur til einstaklinga síður en svo að hækka. Í raun þurfi að draga úr útgjöldum og hagræða í velferðarmálum.
Samkvæmt fjárhagsáætlun velferðarsviðs aukast fjárframlögin um 815 milljónir milli ára. Þorleifur segir að sú aukning fari að megninu til í að greiða fleiri einstaklingum húsaleigubætur.
Þá hafi ekki verið tekið tillit til verðlagsbreytinga milli ára, annað árið í röð. Eðlilegt væri að reikna verðbætur á útgjöldin þar sem verðhækkanir hafi augljóslega áhrif á útgjöld til velferðarmála. Þar sem það hafi ekki verið gert sé framlagið í raun að lækka milli ára.
„Vegna þessa verður að hagræða á velferðarsviði, og starfsfólk hefur staðið í ströngu við að skera niður útgjöldin," segir Þorleifur. „Það er búið að skera alla fituna fyrir löngu, nú er komið að sársaukafullri hagræðingu."
Þorleifur segir að útgjöld borgarinnar myndu aukast um 230 til 240 milljónir króna á ári ef hækka ætti hámarks fjárhagsaðstoð til einstaklinga um átján þúsund krónur á mánuði, eins og borgarfulltrúar Vinstri grænna hafa lagt til. Aðstoðin er nú að hámarki 115.567 krónur á mánuði.
Fjár fyrir þessari útgjaldaaukningu megi afla með því að hækka útsvarið í leyfilegt hámark, 13,28 prósent. Það myndi auka tekjur borgarinnar um 720 til 740 milljónir króna á ári, en hækka skattgreiðslur einstaklings með 500 þúsund krónur í mánaðartekjur um 1.250 krónur á mánuði.
Vísir.is



