Fréttir

18.01.2008 | Áhugaverðar bækur

Foreldrasáttmálinn

Foreldrasáttmálinn

Foreldrasamningurinn hefur verið endurútgefinn og heitir nú foreldrasáttmálinn. Foreldrasáttmálinn hefur verið lagður fyrir í fjölmörgum skólum um allt land og í þeim samfélögum þar sem góð samstaða hefur náðst um samninginn er fólk sammála um jákvæð áhrif hans á unglingamenninguna sem og samstöðu foreldra um að virða útivistarreglurnar svo fátt eitt sé nefnt. Samningurinn er annars vegar fyrir 1.-6. bekk og hins vegar fyrir 7.-10. bekk.

Í þessu forvarnarverkefni er m.a. bent á að foreldrar sem senda barn útsofið í skólann eru að leggja sitt af mörkum til að barnið nái æskilegum námsárangri. Einnig tekur samningurinn til eineltis, samábyrgðar og reglna um notkun á tækni eins og tölvuleikjum og aðgengi að Netinu og farsímum en í þeim málum hafa foreldrar ekki fyrirmynd og því mikilvægt að geta haft samráð um slíkt. Sáttmálinn er fáanlegur á skrifstofu Heimilis og skóla.

Hægt er að nálgast sáttmálann á rafrænan hátt hér fyrir neðan.
Foreldrasáttmáli - 1. - 5. bekkur - ítarefni fyrir foreldra
Foreldrasáttmáli - 1. - 5. bekkur - Plakat

Foreldrasáttmáli - 6. -10. bekkur - ítarefni fyrir foreldra
Foreldrasáttmáli - 6.- 10. bekkur - Plakat

Leiðbeiningar fyrir bekkjarfulltrúa og umsjónarkennara um kynningu á sáttmálanum (fyrir bæði yngri og eldri hóp)

Til baka