Fréttir

18.01.2008 | Áhugaverðar bækur

Ég og bekkurinn minn

Verkefnið Ég og bekkurinn minn  er ætlað nemendum á yngsta stigi grunnskólans.  Efnið hentar einnig elstu börnum leikskóla. Markmiðið með verkefninu er m.a. að veita foreldrum og börnum upplýsingar um hvert og eitt barn í bekknum sem og bakgrunn þess til að stuðla að gagnkvæmum skilningi og virðingu og að skapa góðan grundvöll fyrir öflugt samstarf fjölskyldna og skólans. Í grunnskólanum mætast ólíkir menningarheimar og það er mikilvægt fyrir nemendur og skólastarfið að skólinn skilji og vinni markvisst að því að færa ólíka menningarheima nær hver öðrum. Á skrifstofu Heimilis og skóla má nálgast veggspjaldið og kennsluleiðbeiningar en þær eru einnig aðgengilegar á rafrænu formi hér.

Ég og bekkurinn minn - plakat

Leiðbeiningar fyrir kennara


Nánar um markmið og framkvæmd verkefnisins:

Markmið verkefnisins eru að:
1. Stuðla að gagnkvæmri virðingu og skilningi meðal allra í bekknum og kynnast hverju einstöku barni , fjölskyldu þess og bakgrunni.
2. Skapa nánd og traust í bekknum, bæði meðal barna og foreldra.
3. Fá upplýsingar frá foreldrum og stuðla að því að þeir kynnist.
4. Skapa góðan grundvöll fyrir öflugt samstarf fjölskyldna og skólans.

Hægt er að fá plakatið (stærð A2) á skrifstofu Heimilis og skóla, Suðurlandsbraut 24
Plakatið kostar 100 kr. pr. stk. fyrir félagsmenn en 200 kr. fyrir aðra.

 
Framkvæmd:
Hægt er að nota verkefnið á öllum skólastigum og eins má nota efnið með elstu börnum leikskóla. Mælt er með því að það sé notað á yngsta stigi grunnskóla fyrir hóp eða bekk. Verkefnið er hægt að vinna á skólatíma. Upplagt er að nota „Ég og bekkurinn minn“ í lífsleikni eða samfélagsfræði í 1. eða 2. bekk og jafnvel íslensku. Það hentar einnig vel fyrir bekkjarkvöld með foreldrum, einkum meðal yngri nemenda, sem þurfa töluverða aðstoð við að skrifa og framkvæma verkefnið.

Til baka