Fréttir

28.12.2007 | Áhugaverðar bækur

Virðing og umhyggja: Ákall 21. aldar

Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði

Fátt er mikilvægara en uppeldi og menntun æskufólks. Hér er athyglinni beint að því hlutverki uppalenda, einkum í skólastarfi, að rækta mikilvæg gildi í samskiptum fólks sem almenn samstaða ríkir um: virðingu og umhyggju, vináttu og kærleika, réttlæti og umburðarlyndi. Megináhersla er lögð á hversu brýnt sé að efla samskiptahæfni og siðferðiskennd barna og unglinga og leggja grunninn að fjölmenningarlegri hæfni þeirra og lýðræðislegri borgaravitund.
Umfjöllunin byggist á áralöngum rannsóknum höfundar á félags- og tilfinningaþroska nemenda, samskiptahæfni ungmenna og uppeldis- og menntunarsýn kennara. Hún hvílir á traustum fræðilegum grunni og jafnframt er framsetningin afar lipur og aðgengileg. Viðfangsefnið snertir okkur öll, jafnt foreldra og aðra ættingja sem þær fagstéttir sem annast uppeldi og menntun barna og unglinga og hlúa að heilbrigði þeirra og farsæld.
Höfundurinn,
Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir er prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur hlotið viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars við Háskóla Íslands fyrir „lofsvert framlag til rannsókna“ og Samanhópsins „fyrir vel unnin fræðistörf og gagnlegar rannsóknir í þágu foreldra og barna”.

Heimskringla – Háskólaforlag Máls og menningar



Umsagnir um bókina:
Þessi bók um virðinguna er leiðarljós. Hún vísar veginn í uppeldi til sjálfsvirðingar sem er traustasti lykillinn að því að bera virðingu fyrir öðrum. Gagnkvæm virðing í orðum og athöfnum er besta veganestið í samfélagi okkar til að njóta frelsis og jafnréttis með samtíðarmönnum. Ég fagna útkomu þessarar bókar sem skrifuð er af mikilli þekkingu og djúpu innsæi.
Vigdís Finnbogadóttir

Sigrún Aðalbjarnardóttir hefur samið frábæra leiðsögn um þroskaleitina á lífsleiðinni, athyglisvert framlag til menntunarfræði í anda lýðræðis. Bókin er nýjung bæði á innlendum og erlendum vettvangi, skyldulestur fyrir alla sem starfa að uppeldis- og menntunarmálum.
Wolfgang Edelstein

Til baka