Fréttir
27.12.2007 | Fyrir foreldra
Samræmd próf í 10.bekk
Breyting hefur verið gerð á reglugerð um samræmd próf er snertir nemendur í 8. og 9. bekk. Í janúar 2005 sendi Heimili og skóli menntamálaráðuneytinu ósk um breytingu á reglugerð um samræmd próf sjá hér . Nýlega var þessi breyting gerð þannig að nemendur
Breyting hefur verið gerð á reglugerð um samræmd próf er snertir nemendur í 8. og 9. bekk.
Í janúar 2005 sendi Heimili og skóli menntamálaráðuneytinu ósk um breytingu á reglugerð um samræmd próf sjá hér.
Nýlega var þessi breyting gerð þannig að nemendur sem eru í 8. eða 9. bekk og vilja taka samræmd próf geta nú þreytt prófið aftur í lok 10. bekkjar. Sjá reglugerð hér neðar.
Skráning í samræmd próf í vor er reyndar lokið en þeir nemendur sem hafa nú þegar skráð sig í próf í vor þurfa að fá vitneskju um að þeir geta tekið það aftur að ári ef þeir telja þörf á að bæta árangur sinn. Hafa þarf þetta í huga næsta vetur og kynna fyrir þeim nemendum sem standa sig vel í námi og vilja og geta þannig lokið einhverjum samræmdum prófum fyrr.
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 414/2000 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra lokaprófa í 10. bekk í grunnskólum.
1. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Nemendum í 10. bekk grunnskóla skal gefast kostur á að þreyta samræmd próf í allt að sex námsgreinum sem menntamálaráðherra ákveður. Þeir nemendur í 8. og 9. bekk, sem að mati skólastjóra og umsjónarkennara, hafa staðist þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt aðalnámskrá við lok grunnskóla í einstökum námsgreinum, geta, með samþykki forsjáraðila, valið að þreyta samræmd lokapróf í þeim námsgreinum.
Nemanda er heimilt að endurtaka samræmt lokapróf einu sinni. Velji nemandi að endurtaka próf skal síðari einkunnin gilda.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 11. mars 2005.
Þorgerður Katrín Gunnarsóttir.



