Fréttir

27.12.2007 | Fyrir foreldra

Láttu til þín taka

Rannsóknir á forvörnum fyrir börn og unglinga sýna að breytni forráðamanna skiptir afar miklu máli. Eftirfarandi atriði eru mikilvæg: Samvera Tryggðu sem mesta samveru. Því meiri tíma sem þú verð með barninu þínu því betra. Magn tímans skiptir miklu máli. Stuðningur Veittu

Rannsóknir á forvörnum fyrir börn og unglinga sýna að breytni forráðamanna skiptir afar miklu máli. Eftirfarandi atriði eru mikilvæg:

Samvera
Tryggðu sem mesta samveru. Því meiri tíma sem þú verð með barninu þínu því betra. Magn tímans skiptir miklu máli.

Stuðningur
Veittu andlegan stuðning. Sýndu áhuga á málum barns þíns. Stuðningur við heimanám skiptir miklu máli.

Vertu nærri
Vertu viss um hvar barnið þitt er hverju sinni. Leyfðu ekki eftirlitslaus partý. Láttu barnið vita hvar þú ert.

Vellíðan heima
Skapaðu gott umhverfi heima fyrir barnið og vini þess.

Reglur
Gættu þess að útivistarreglur sem og aðrar reglur séu virtar.

Áhugi og eftirfylgd
Hvettu barnið til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og fylgdu því eftir af áhuga.

Félagsauður
Þekktu foreldra skólafélaga og vina barna þinna og vertu hluti af samfélagi og neti foreldra. Láttu þig varða um börn annarra.

Sameiginlegt verkefni
Forvarnarstarf er grasrótarstarf. Sterkt net foreldra er mikilvægt til að skapa heilbrigt og gott samfélag fyrir börn og unglinga.

Þessi heilræði voru unnin af forvarnarnefnd Garðabæjar í samráði við Rannsóknir og greiningu í janúar 2005

Til baka