Fréttir
27.12.2007 | Foreldraverðlaun 2007
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2006: Stóra upplestrarkeppnin
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla landssamtaka foreldra, voru afhent í 11. sinn þriðjudaginn 16. maí, við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti verðlaunin. Auk Foreldraverðlaunanna voru veitt tvenn hvatningarverðlaun og ein dugnaðarforkaverðlaun. F.v. María Kristín
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla landssamtaka foreldra, voru afhent í 11. sinn þriðjudaginn 16. maí, við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti verðlaunin.
Auk Foreldraverðlaunanna voru veitt tvenn hvatningarverðlaun og ein dugnaðarforkaverðlaun.
F.v. María Kristín Gylfadóttir formaður Heimilis og skóla, Baldur Sigurðsson, Ingibjörg Einarsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2006:
Ingibjörg Einarsdóttir og Baldur Sigurðsson hlutu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2006 fyrir frumkvöðlastarf og óeigingjarna vinnu í þágu Stóru upplestrarkeppninnar.
(Sjá lýsingu og greinargerð um verkefnið hér neðar)
Hvatningarverðlaun:
- Hera Sigurðardóttir og Bryndís Gunnarsdóttir fyrir frábæra vinnu við þróunarverkefnið Allir í sama liði í Vesturbæjarskóla í Reykjavík.
- Foreldrafélag Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi fyrir markvisst og öflugt foreldrasamstarf og samvinnu heimila og skóla.
Dugnaðarforkur:
Össur Geirsson stjórnandi Skólahljómsveitar Kópavogs fyrir óeigingjarnt og öflugt starf að tónlistarlegu uppeldi grunnskólanemenda í Kópavogi.
24 tilnefningar bárust til verðlaunanna að þessu sinni og voru 20 verkefni tilnefnd. Sjá bækling um allar tilnefningar á pdf. formi
Foreldraverðlaunin hafa unnið sér fastan sess í samfélaginu og vekja athygli á þeim mörgu verkefnum sem efla starf grunnskólanna og öflugt og jákvætt samstarf heimila, skóla og samfélagsins.
Aðalmarkmiðið með veitingu Foreldraverðlaunanna er að vekja athygli á því gróskumikla starfi sem unnið er á fjölmörgum sviðum í grunnskólum landsins. Við veitingu verðlaunanna er sérstaklega litið til verkefna sem hafa eflt samstarf foreldra og skólastarfsmanna og komið á uppbyggjandi hefðum í samstarfi þessara aðila. Einnig er litið til verkefna sem hafa eflt tengsl heimila, skóla og æskulýðsstarfs í gegnum forvarnarstarf eða hafa stuðlað að samræmdu átaki við lausn á vandamálum innan viðkomandi skólasamfélags.
Í dómnefnd Foreldraverðlauna Heimilis og skóla 2006 sátu:
María Kristín Gylfadóttir, formaður. Heimili og skóli
Hlynur Snorrason. Heimili og skóli
Sigurveig Sæmundsdóttir Skólastjórafélag Íslands
Gunnlaugur Sigurðsson. Menntasvið Reykjavíkurborgar
Sigríður Einarsdóttir. Kennaraháskóli Íslands
Árni Sv. Mathiesen. Foreldraráð Hafnarfjarðar
Hrefna Gunnarsdóttir. Fulltrúaráði Heimilis og skóla og Samkóp
Upplýsingar um verðlaunahafana og verkefni þeirra:
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2006:
Stóra upplestrarkeppnin
Ingibjörg Einarsdóttir og Baldur Sigurðsson fyrir frumkvöðlastarf og óeigingjarna vinnu í þágu keppninnar.
Í greinargerð með tilnefningu segir m.a.:
Stóra upplestrarkeppnin hefur verið haldin árlega síðan 1996 og á því 10 ára starfsafmæli í ár.
Fyrsta árið var hún haldin með þátttöku fjögurra skóla í Hafnarfirði og á Álftanesi, en breiddist út um allt land á sex árum. Frá hausti 2001 hafa þátttakendur verið á fimmta þúsund í um 150 skólum um land allt, eða nánast allir nemendur í 7. bekk. Keppnin hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu og lýkur í mars. Segja má að keppnin fari fram í tvennu lagi. Á Fyrri hlutanum er lögð sérstök rækt við vandaðan upplestur og framburð í hverjum bekk. Þær vikur í skólunum sem helgaðar eru vönduðum upplestri eru mikilvægasti hluti keppninnar. Kennarar hvers skóla hafa veg og vanda af þessum hluta. Þessum hluta lýkur með upplestrarhátíð í hverjum skóla þar sem tveir til þrír nemendur eru valdir til áframhaldandi þátttöku í keppninni fyrir hönd skólans. Síðari hluti keppninnar er haldinn í góðum samkomusal í byggðarlaginu í mars. Undirbúningsnefnd velur lesefni sem flutt verður en keppendur fá upplýsingar um hvað þeir eiga að lesa með góðum fyrirvara og geta undirbúið sig. Á lokahátíðinni velur dómnefnd þrjá bestu upplesarana. Í ár voru lokahátíðirnar alls 34 talsins. Víða er lokahátíðin með stærstu viðburðum ársins í byggðalaginu. Í hverju byggðarlagi er skipuð þriggja manna héraðsnefnd sem sér m.a. um undirbúning vegna lokahátíðar og að skipa fólk í dómnefnd. Foreldrar eiga einn fulltrúa í þessari nefnd og þeir sitja líka oft í dómnefndum. Foreldrar taka einnig virkan þátt í undirbúningi barnanna með því að aðstoða þau við að velja valkvætt ljóð og hlusta á þau æfa sig heima. Baldur Sigurðsson, dósent í KHÍ og Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar eru upphafsmenn keppninnar og hafa haft veg og vanda að undirbúningi og utanumhaldi með keppninni frá upphafi. Fyrsta lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Hafnarfirði fyrir 10 árum og hefur Ingibjörg haft veg og vanda að skipulagningu lokahátíðarinnar þar æ síðan. Baldur og Ingibjörg sitja bæði í stjórn Radda, samtaka um vandaðan upplestur og framsögn, sem stendur að keppninni, en ferðast auk þess ár hvert á margar lokahátíðir víða á land til að starfa í dómnefndum. Eljusemi þeirra og trú á verkefninu á sinn þátt í hversu vel keppninnni hefur verið vel tekið og hversu fljótt hún hefur vaxið.
Í umsögn dómnefndar segir m.a.:
Það taka allir nemendur í 7. bekk þátt í Stóru upplestrarkeppninni. Hér hafa öll börn jöfn tækifæri til að blómstra og nemendur sem annars hefur farið lítið fyrir í skólanum hafa oft á tíðum fundið sinn farveg í gegnum þátttöku í keppninni. Fjöldi þátttakenda í keppninni á hverju ári gerir Stóru upplestrarkeppnina að stærsta skólaþróunarverkefni á Íslandi. Á þeim tíu árum sem keppnin hefur verið haldin hefur hún fest sig í sessi meðal skólafólks, nemenda, foreldra og samfélagsins alls. Það sem einkum einkennir keppnina er grasrótarstarf en keppnin er runnin undan rótum áhugafólks um eflingu íslenskrar tungu. Keppnin er ekki skilgreind opinberlega sem hluti af verksviði skólayfirvalda en engu að síður taka mörg hundruð kennarar þátt í verkefninu á ári. Foreldrar hafa einnig margvíslega aðkomu að verkefninu, allt frá því að aðstoða börn sín við undirbúning fyrir þátttöku heimafyrir, taka þátt í lokahátíðum í skóla eða byggðarlagi og með setu í héraðsnefndum. Verkefnið er frábært dæmi um hvernig er hægt að virkja skóla, foreldra, nemendur og samfélag til samstarfs um eflingu skólastarfs.
Hvatningarverðlaun:
Hera Sigurðardóttir og Bryndís Gunnarsdóttir fyrir frábæra vinnu við þróunarverkefnið Allir í sama liði í Vesturbæjarskóla í Reykjavík.
Í greinargerð með tilnefningu segir m.a.:
Markmiðið með verkefninu Allir í sama liði er að efla foreldra til virkari þátttöku í velferð barna sinna í skólanum. Í stað þess að foreldrar komi jafnan inn i skólann sem gestir og móttakendur upplýsinga er leitast við í verkefninu að veita þeim aðgang að verkefnum sem eru til þess fallin að auka líkurnar á virku samstarfi foreldra, kennara og nemenda á jafnréttisgrunni. Meðal þeirra verkefna sem nefna má eru gullkorn en það eru lítil kort sem nemendur fá vikulega frá kennara sínum, en á þau hefur hann skrifað eitthvað jákvætt sem nemandinn hefur unnið þá vikuna. Annað verkefni er heimaverkefni sem felst í því að nemandinn og foreldrar hans undirbúa og kynna í sameiningu fyrir bekknum ákveðin efni, t.d. áhugaverða persónu, söfn, áhugamál ofl. Fjölskyldan fær algerlega frjálsar hendur um undirbúning og kynningu. Annað verkefni felst í því að foreldrar meti sjálfir heimavinnu barna sinna samkvæmt matskvarða, í sérstökum verkefnum og verða þannig betur í stakk búnir til samstarfs um nám og námsmat barna sinna. Loks má nefna morgunkaffi í kennslustofunni fyrir foreldra, sem nemendur standa fyrir ásamt kennara sínum í skólastofunni. Morgunkaffið er mjög vel sótt af foreldrum. Þátttaka foreldra í verkefninu er 100% og margir þeirra hafa lýst mikilli ánægju með verkefnið. Fleiri kennarar innan og utan skólans hafa sýnt einstökum verkefnum áhuga og jafnvel tekið þau upp.
Í mati dómnefndar segir m.a.:
Allir í sama liði er dæmi um frumkvæðisverkefni kennara til að efla samstarf við foreldra nemenda. Þátttaka og ánægja foreldra í verkefninu segir meira en mörg orð. Foreldrar vilja styðja börn sín í námi og verkefnið veitir þeim raunveruleg tækifæri til að vera virkir þátttakendur í skólastarfi barna sinna. Það er eindregin von dómnefndar að þetta frábæra framtak Heru og Bryndísar haldi áfram að þróast og eflast og að fleiri kennarar í öðrum skólum nýti sér þann grunn sem Hera og Bryndís hafa lagt.
Hvatningarverðlaun:
Foreldrafélag Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi fyrir markvisst og öflugt foreldrasamstarf og samvinnu heimila og skóla.
Í greinargerð með tilnefningu segir m.a.:
Foreldrafélag Laugargerðisskóla er fyrirmyndarforeldrafélag sem stuðlar að virku samstarfi skólans og foreldra. Við teljum að foreldrafélagið okkar eigi engan sinn líka. Einkum viljum við undirstrika að foreldrafélagið tekur ábyrgð á samstarfinu til jafns á við skólann. Skólinn þarf aldrei að vera í vafa um þátttöku foreldra þegar eitthvað stendur til í skólanum. Foreldrafélagið hefur mótað hefðir sem stuðla að því að brúa bilið milli foreldra og allra nemenda skólans og einnig milli foreldra og alls starfsfólks skólans. Starf foreldrafélagsins er líka markvisst og öflugt. Það tekur þátt í útgáfu mánaðarlegs fréttabréfs og skipuleggur í samvinnu við skólann allar uppákomur sem nemendur taka þátt í, eins og íþróttaæfingar einu sinni í viku og svokallaða Langa Daga einu sinni í mánuði. Foreldrarnir sjá um Félagsmiðstöðina Eldingu og eru duglegir að fylgja nemendum á ýmsar skemmtanir, s.s. Samfés böll og í leikhús. Auk alls þessa eru foreldrar duglegir að mæta á ýmsa viðburði í skólastarfinu þrátt fyrir að sumir komi langt að. Undanfarin ár hefur stjórn foreldrafélagsins sest niður að hausti og skipulagt fjölbreytt starf með nemendum. Allir foreldrar í skólanum eru virkjaðir til þátttöku í starfinu.
Í umsögn dómnefndar segir m.a.:
Laugargerðisskóli er lítill sveitaskóli með einungis 47 nemendur sem margir hverjir koma langt að í skólann. Virkni og þátttaka foreldra í slíkum aðstæðum skiptir mjög miklu máli, ekki bara fyrir nemendur, heldur fyrir alla starfsemi skólans. Hér er dæmi um starf þar sem skóli, foreldrar og nemendur standa þétt saman að því að byggja upp skólastarf með því að virkja alla foreldra til þátttöku.
Dugnaðarforkur - Sérstök verðlaun:
Össur Geirsson stjórnandi Skólahljómsveitar Kópavogs fyrir óeigingjarnt og öflugt starf að tónlistarlegu uppeldi grunnskólanemenda í Kópavogi.
Í greinargerð með tilnefningu segir m.a.:
Síðastliðin 40 ár hefur hljómsveitin spilað stórt hlutverk í tónlistarlegu uppeldi æsku Kópavogs en alls starfa um 150 börn í sveitinni á hverjum tíma. Hljómsveitin gegnir líka veigamiklu hlutverki í samfélaginu í Kópavogi en meðlimir hljómsveitarinnar spila reglulega á hinum ýmsu hátíðum og athöfnum í bænum, eða setja punktinn yfir i-ið á ýmsum samkomum á vegum skóla og foreldrafélaga, allt frá laufabrauðsgerð og jólaföndri til skrúðgangna á vorhátíðum. Það er sannkallaður happadrættisvinningur að taka þátt í starfi hljómsveitarinnar. Á síðustu árum, allt frá því að Össur Geirsson tók við stjórn sveitarinnar, hefur félagslegt og forvarnarleg gildi starfsins aukist enn frekar. Nemendur hljómsveitarinnar læra öguð vinnubrögð og að koma fram í fjölmenni, sem styrkir sjálfsímynd þeirra, auk þess sem félagsskapurinn og félagslífið sem þau njóta á æfingum, í æfingabúðum og á ferðalögum er ómetanlegt. Kennaralið hljómsveitarinnar er einstakt og greinilegt að þarna er á ferðinni hópur sem vinnur saman í takt. Foreldrum er líka boðið í kennaraviðtöl. Sá aðili sem ber þó hitann og þungann af þessu frábæra starfi er Össur Geirsson stjórnandi hljómsveitarinnar. Með ótrúlegum skipulags-, stjórnunar- og leiðtogahæfileikum hefur Össur skipað starfinu þann sess að það er í algjörum forgangi hjá þeim fjölskyldum sem tengjast hljómsveitinni.
Í umsögn dómnefndar segir m.a.:
Össur Geirsson er einungis annar stjórnandi Skólahljómsveitar Kópavogs frá upphafi og hefur starfað óslitið sem hljómsveitarstjóri frá árinu 1993. Af umsögnum barnanna sem taka þátt í starfinu og foreldra þeirra má ráða að Össur er límið sem heldur sveitinni saman. Með áhuga sínum og eljusemi hefur honum tekist að efla áhuga þúsunda barna á tónlist og tekist að virkja foreldra, systkini, sem og aðra ættingja og vini, til virkrar þátttöku í starfseminni. Virkni starfseminnar nær líka langt út fyrir það umhverfi sem hljómsveitin starfar í og hljómsveitin er orðin að ákveðinni stoð í samfélaginu.
Til baka



